"Það er ekki hvað þú upplifir heldur hvernig þú upplifir það"
Bruen "Travel in life" til Danmerkur/ Spánar
B.T.M. Breytingar - Tækifæri - Markmið!
Námskeið og frí á Spáni/ Danmörk fyrir einstaklinga vor/ sumar 2011
Tilvalið tækifæri til að skoða stöðu þína í lífinu , kynnast nýju fólki og upplifa nýjar hliðar lífsins með því að gera eitthvað öðruvísi og spennandi.
Námskeið í NLP-samskiptatækni og markþjálfun í eigin lífi ásamt nýju markmiðsplani fyrir framtíðina...
Markmiðið með námskeiðinu er m.a. að skoða hvernig óvæntar breytingar geta haft áhrif á líf okkar og hvernig við og umhverfið bregðumst við. Námsefnið byggir á grundvallarkenningum NLP- samskiptafræðinnar og coaching og kennir okkur hvernig hægt er á einfaldan hátt að setja sér raunhæf og framkvæmanleg markmið og breyta lífsstefnunni í þá átt sem við óskum.
Við munum skoða og vinna með: LÍFSHJÓLIÐ - Hvernig líður mér í raun og veru ? MARKPLAN - Hvernig væri líf mitt ef ég gæti valið óháð öllum hindrunum ?
Leiðbeinandi: Hrefna Birgitta Bjarnadóttir, NLP - kennari, meðhöndlari, coach og Enneagram Practitioner. Hrefna hefur yfir 25 ára reynslu í sínu fagi og hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um BTM / Breytingar, tækifæri og markmið, fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi, í Noregi og Danmörku. Sjá nánar á vefsíðunni vegna frekari upplýsinga.
Til að panta og bóka hafið samband við: Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur í síma 0045- 22 9449 24 eða hbbjarnadottir@hotmail.com og hjá Jóni Bjarna Bjarnasyni 8980714, solrisjbb@simnet.is
Farið verður til Spánar/ Danmerkur og verður tíminn ákveðinn þegar næg þáttaka hefur fengist, lágmark 12 í hóp.
Kanski við í sameiningu getum fundið upp á skemmtilegri ferð með fræðslu og óvæntum uppákomum fyrir þig, fyritækið og/eða íþróttafélagið...



