Meðhöndlun

Flestir hafa upplifað sársauka og verki eða átt við veikindi að stríða, líkamleg eða andleg. Að öllu jöfnu tekst okkur að yfirstíga þau á skömmum tíma. En stundum valda veikindin því að „eitthvað” situr eftir í líkama eða sál. Þetta á til að gerast ef við einangrum þetta „eitthvað” í lengri tíma.
Því er nefnilega þannig farið að ef okkur líður illa í sálinni þá brýst það út á líkamanum og öfugt. Líkami og sál hafa bein áhrif á hvort annað og gefa okkur merki um að ekki sé allt eins og það á að vera. Það birtist í verkjum, þreytu og öðrum kvillum. Þá þurfum við oft á hjálp að halda svo hægt sé að „leysa upp, þetta eitthvað.”

Einn á einn eða fjölskyldan
Í meðhöndlun er hægt að notast við mismunandi aðferðir, bæði hefðbundnar sem óhefðbundnar og jafnvel nokkrar í einu.
Með samtali í fyrsta tíma finnum við út í sameiningu þær grunnupplýsingar sem við þurfum til að átta okkur á hvaða ögrunum þú stendur frammi fyrir.
Hvað er það í raun sem þú þarfnast?

Sem alhliða meðhöndlari einblíni ég á alla þætti í fari einstaklingsins eða heildar-fjölskyldumynstrið, bæði líkamlega og andlega þætti. Þess vegna er mikilvægt fyrir mig að fá sem heildstæðasta mynd af aðstæðunum því það gefur mér aukna möguleika að finna bestu aðferðina fyrir jákvætt heilunarferli.
Til að finna út úr þessu nota ég „Lífshjólið” á sama hátt og ég geri í coaching. Við fáum yfirsýn yfir aðstæðurnar.

Hvernig hefur þú það í raun og veru?

Fyrir fyrirtæki
Meðhöndlun á augljóslega heima í öllum fyrirtækjum að mínu mati.
Ég trúi að þau fyrirtæki sem fylgjast með líðan starfsmanna sinna og vinna að því að bæta hana finni minna fyrir veikindafjarvistum en þau sem gera það ekki.
Hvort sem um er að ræða tilboð í nudd, líkamsrækt, samtöl eða annað sambærilegt fyrir starfsmenn þá trúi ég að slíkar aðferðir gagnist fyrirtækinu og ekki síður starfsmönnunum.

Ég trúi einnig að í sumum tilvikum þurfi fyrirtækið sjálft einnig meðhöndlun. Kannski finnast einhver óæskileg mynstur sem endurtaka sig aftur og aftur en skapa um leið óæskilegan starfsanda.
Með því að vera meðvitaður um og breyta óæskilegu atferli og mynstrum gefst tækifæri til að breyta þessu til batnaðar.

Fyrir stjórnendur
Þótt þú sért stjórnandi ertu líka bara manneskja, full/ur af tilfinningum, þörfum og væntingum. Sumar af þeim hjálpa þér og veita ánægju og skila góðum árangri meðan aðrar búa til hindranir og þröskulda sem erfitt er að komast yfir...
Þú sem stjórnandi og „bara manneskja” getur líka þurft á hjálp og meðhöndlun að halda. Oft geta meðhöndlandi samtöl lyft þungu fargi af öxlunum og auðveldað þér að halda áfram. Meðhöndlunarsamtal getur oft verið lykillinn að árangursríku coachingferli sem veitir nýja og dýpri ánægju.

Fyrir aðra
Reynsla mín segir að flestir þurfa einhvers konar meðhöndlun á lífsleiðinni. Hvort sem þú ert stjórnandi eður ei þá stjórnarðu eigin lífi. Ábyrgðin er þín þegar kemur að því að hlusta og taka eftir hvaða skilaboð líkami þinn og sál senda frá sér.
Ég gæti haft „verkfæri” handa þér. Ég get kennt þér á þau en það er þitt að nýta þau.

Áður en þú velur að koma í meðhöndlun skaltu spyrja sjálfan þig:
-Hvað vil ég eiginlega? - Hvernig vil ég nota lífið þegar mér batnar?
-Hvað mun breytast þegar ég stíg upp úr veikindunum?

Þegar þú hefur fundið svörin, svaraðu þá hvort þú sért tilbúin/n að hefja ferli í átt að nýju lífi.

Oftast er kaldhæðnin sú að sjúkdómar veita okkur einhvern ávinning. Mundu þess vegna að þegar þú breytir til og stefnir að nýju markmiði þá yfirgefur þú um leið „eitthvað annað” í lífi þínu sem mögulega hefur skipt þig miklu máli.
Þetta „eitthvað annað” getur verið það sem gaf þér öryggi eða eitthvað sem þú þekktir mjög vel.
Þess vegna þarf oft þor, áræðni og mikla vinnu til að rífa sig upp á ný. Þor og áræðni til að takast á við hið óþekkta og komast þangað.

Pantaðu meðhöndlun þegar þú ert tilbúin/n.