Um Bruen

Bruen býður upp á:  Ferðir & Fræðslu, NLP-coaching-, meðhöndlun- og lífsþjálfun fyrir fyrirtæki, stjórnendur, íþrótta-/ félagasamtök og einstaklinga.  Fyrirtækið  var stofnað á Íslandi árið 1986 af Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur sem enn er framkvæmdastjóri og eigandi Bruen. Á þeim tíma hét fyrirtækið „Heilsu-Stofa” og var þá rekið sem nuddstofa með námskeið og kennslu sem hliðargreinar.
Árið 1998 var fyrirtækið skrásett í Noregi sem „Helse-Stova, heildræn fyrirtækjaþjónusta”.
Með aukinni notkun NLP- og coaching breyttist viðskiptaumhverfið. Eftirspurn eftir námskeiðum og námi í samskiptafræði, hvatningu, coaching og stjórnun, fyrir hið opinbera og einkageirann jókst og fyrirtækið tók mið af því. Þetta gerði það af verkum að starfsemin hefur breyst frá því fyrirtækið var stofnað.

Bruen (ísl. Brúin), var skráð í janúar 2008. Nafninu var breytt í samræmi við nýtt skipulag sem byggir á námskeiðum, coaching og ferðum.
Hugsjón Brúarinnar er: „Að vera brúarsmiður, milli þess staðar sem þú ert á, bæði andlega og líkamlega, til þess staðar sem þú vilt vera á í lífinu”, með bæði innri og ytri upplifanir sem meginmarkmið.
Við getum kallað það: „Travel in life, með ferð og fræðslu”.