Um Hrefnu Birgittu
Nafn mitt er Hrefna Birgitta Bjarnadóttir og ég er faglegur ábyrgðarmaður fyrirtækisins. Ég er rekstrarstjóri, námskeiðastjóri, fyrirlesari/ kennari, meðhöndlari, coach og ferlisráðgjafi.
Menntun:
- Alþjóðlegt prófskírteini sem NLP- kennari, meðhöndlari og coach.
- Coaching og kompetanseutvikling frá Háskólanum í Hedmark, Noregi.
- Íslenskt meistarabréf í nuddi/meðhöndlun, með áherslu á: svæðameðferð, kinesiologi, naturmedisinsk aromaterapi, klassískt nudd, íþróttameðferð, samtalsmeðferð og heildræna fyrirtækjaþjónustu.
- Opinberlega viðurkenndur sjúkraliði í Noregi og á Íslandi.
- Fjöldi námskeiða í meðhöndlun, sjálfsstyrkingu, samskiptafræðum, hvatningu, coaching, þjálfun íþróttafólks, stjórnunarstörfum o.fl.
Starfsferill:
Síðan 1986 hef ég verið sjálfstæður atvinnurekandi þar sem ég hef boðið upp á meðhöndlun, coaching, námskeið og fyrirlestra, og auk þess kennslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök. Samskiptafræði, hvatning, markmiðasetning, breytingaferli, sjálfsstyrking, stjórnun og mannleg samskipti eru þættir sem ég hef byggt á og miðlað í starfi mínu.
Ég hef unnið ýmis verkefni og störf fyrir ráðuneyti heilbrigðis-, trygginga- og atvinnumála í Noregi.
Ég hef tekið þátt í að byggja upp hvatningar- og stöðumatsnámskeið fyrir atvinnulausa og sjúkraskráða í Möre og Romsdal í Noregi. Samhliða því byggði ég upp NLP nám fyrir starfsmenn félagsmálastofnunar á staðnum og hélt námskeið í coaching, námskeiðastjórnun og samskiptafræðum fyrir deildarstjóra.
Ég hef rekið heildræna fyrirtækjaþjónustu í mörg ár og hef gaman af áskorunum og breytingarferlum sem starf mitt býður upp á sem meðhöndlari, coach og námskeiðahaldari fyrir hin ýmsu fyrirtæki og félagasamtök.
Meðal traustustu viðskiptavina minna var eitt stærsta og þekktasta mjólkurframleiðslufyrirtæki Noregs, Tine.
Áður en ég fluttist til Norges var ég kennari og skólastjóri Nuddskóla Íslands en áður starfaði ég á sjúkrahúsum í Noregi og á Íslandi. Þessi störf hafa gefið mér nytsama og dýrmæta reynslu.
Ýmis stjórnunarstörf og seta í stjórnum félagasamtaka hafa tekið hluta af tíma mínum bæði á Íslandi og í Noregi. Má nefna að ég hef setið sem stjórnarformaður í Félagi íslenskra nuddara, stjórnarformaður í Norsk organisasjon for Aromaterapi (NOA) og stjórnarmeðlimur í Interim styre i nordisk råd for naturmedisin.
Íþróttir og útivera hafa verið hluti af lífi mínu eins lengi og ég man. Frá því að vera afrekskona í íþróttum, þjálfari og dómari, hef ég á seinni árum verið meðhöndlari og coach fyrir marga íþróttaiðkendur og verið meðal annars viðriðin knattspyrnu- og handknattleiksdeild FK Molde. Sem uppalinn Valsari hvet ég að sjálfsögðu enn mína menn og konur.
Þekking:
Eftir margra ára nám og vinnu í tengslum við samskipti fólks hef ég öðlast mikla reynslu á því sviði. Hún hefur aukið enn frekar skilning minn á hve mikilvægt er í samskiptum að sýna virðingu fyrir sjónarmiðum og meiningu annarra. Fyrir vikið á ég auðvelt með að sjá aðstæður frá ólíkum sjónarhornum og miðla skoðunum mínum áfram á mjög skilmerkilegan hátt.
Sem NLP-kennari, meðhöndlari og coach, hef ég þróað með mér djúpt innsæi og pedagógíska hæfileika til að aðstoða fólk og fyrirtæki til að komast áfram og ná settu marki.
Sem fyrrum afrekskona í íþróttum og síðar þjálfari hef ég lært töluvert um hvatningu og markmiðasetningu. Það hefur kennt mér að vera ákveðin og markviss í því sem ég tek mér fyrir hendur.
Ég lít á sjálfa mig sem mjög heiðarlega og ábyrgðarfulla konu með gott skap og kímnigáfu. Ég hef tamið mér jákvæðni og bjartsýni sem endurspeglast kannski best í lífsviðhorfi mínu: „Ef ég fæ sítrónu geri ég hana að appelsínu”.