NLP Practitioner
Bruen bíður upp á:
- Námskeið, kennslu og fyrirlestra, bæði hér heima og erlendis
- Lífstílsferðir, ferðir með tilgang
- Coaching
- Meðhöndlun
- Nlp-nám
- Þjálfun í starfi stjórnenda
Námskeið/menntun/fyrirlestrar, bæði heima og erlendis.
- Hefur þú áhuga á að auka færni þína í tjáningu, leysa deilur og öðlast betri
samskipti við aðra með því að auka skilning þinn á hugsana- og viðbragðamynstri?
- Hefur þú löngun til að gera breytingar í einkalífi og/eða í fyrirtæki þínu?
- Langar þig að öðlast það sem þú vilt á markvissari hátt en áður?
- Vilt þú verða enn færari í að leiða sjálfan þig og aðra?
- Hefur þú löngun til að læra um coaching og samtalstækni?
Fyrir hverja eru námskeiðin?
Námskeiðin eru fyrir alla sem vilja breytingar í líf sitt, hvort sem er í einkalífi eða starfi. Þau eru einnig ætluð þeim sem finnst þeir hafi verið „þvingaðir” til breytinga, s.s. vegna skilnaðar, dauðsfalls ástvina, uppsagnar eða vegna annarra sambærilegra ástæðna.
Námskeiðin eru fyrir alla sem vilja bæta eigin tjáningu, bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum, og þá sem vilja auka innsæi sitt og sjálfsstjórn. Þau eru ætluð þeim sem er tilbúnir að taka ábyrgð á eigin breytingaferli og þróun sem hægt er að koma af stað.
Ég bý yfir góðum, einföldum og árangursríkum ráðum sem ég get kennt þér að nota.
Tækifærið þitt er að nota þau og nýta til að fá það sem þú vilt.
Á hverju byggjast námskeiðin?
Námskeiðin byggjast á blöndu af NLP- hugmyndafræðinni, meðhöndlun, coaching, stjórnun og hæfileikaþróun.
Þau eru einnig byggð á margra ára reynslu úr starfi, þar sem áhersla er lögð á gagn þeirra þátta sem gagnast best.
NLP-menntun
NLP- námið fylgir alþjóðlegum stöðlum. Náminu lýkur með stöðumati og viðunandi árangur tryggir nemendum diplóma-gráðu í faginu.
Hægt er að taka NLP- Practitioner og NLP- Master nám. Námið í hvorri gráðu fyrir sig tekur að lágmarki 120 kennslustundir auk verkefna og þjálfunar og skiptist í tímabundnar einingar.
Einnig er hægt að taka einungis hluta námsins.
Annað nám eins og námskeiðaleiðsögn, stjórnun og coaching eru sérsniðin eftir óskum.
Fyrir atvinnulífið
Fyrirtæki geta sérpantað námskeið og fyrirlestra og eru þau sniðin að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Tilgangurinn er að koma til móts við þarfir og stöðu og miða fræðsluna við hagsmuni hans. Þannig er hægt að komast að rótum þess sem þarf að breyta og ná settu marki. Þetta getur tengst ýmsum aðstæðum, t.a.m. bæta andrúmsloftið á vinnustað eða draga úr veikindaforföllum.
Atvinnulífið í dag einkennist oftar en ekki af óöryggi og óróa sem getur haft slæm áhrif á starfsmenn. Þegar málum er þannig háttað getur verið nauðsynlegt að fá utanaðkomandi aðstoð og stuðning svo hópurinn venjist breytingum og komist klakklaust í gegnum þær.
Sumir lenda í óhjákvæmilegum veikindum og eru frá vinnu í langan tíma. Þá getur verið erfitt að mæta aftur til vinnu án aðstoðar.
Með því að laga námskeiðið/coachingen að stöðunni innan fyrirtækisins sjálfs, er auðveldara að taka tillit til þeirra sem hlut eiga að máli og aðstoða við að ná settu marki.
Að námskeiðinu loknu er boðið upp á að fylgja eftir því sem fram fór, t.d. coaching, meðhöndlun og hópvinnu. Það er gert til að hámarka árangurinn af námskeiðinu.
Fyrir heilbrigðis- og tryggingakerfið
Endurkomunámskeið er námskeið sem tekur 24-30 kennslustundir. Hér er markmiðið að hjálpa þeim sem hafa verið fyrir utan vinnumarkaðinn í langan tíma en langar aftur út í atvinnulífið. Einblínt er á styrk og hæfni einstaklingsins svo hægt sé að finna starf við hæfi. Þátttakendurnir fá aðstoð við að greina milli eigin reynslu og þeirra þátta sem hingað til hafa hamlað þeim frá vinnumarkaði. Með því er hægt að fá einstaklinginn til að nota þá færni sem nýtist honum í starfi.
„Lífshjólið” er hugtak sem unnið er með og út frá því læra þátttakendur að setja sér raunhæf markmið sem mögulegt er að ná. Þeir læra að gera markmiðaáætlun sem byggir á þeirra eigin gildum og gefur þeim enn stærri „eignahluti” í framtíðinni.
Markmið mitt er að þú upplifir að þú sért á leiðinni... að því lífi sem þú sjálf/ur óskar.
Önnur námskeið
Eftirfarandi námskeið hafa mismunandi þema og miða að hverjum markhópi fyrir sig. Þau henta öllum: Atvinnuhópum, fyrirtækjum, íþróttafélögum, einstaklingum...
Þessi námskeið verða sett upp og auglýst sérstaklega.
Einnig er hægt að óska eftir námskeiðum/fyrirlestrum svo framarlega sem lágmarksfjöldi sé 6 manns.
Markmið Bruen er:
„Að mæta þér þar sem þú ert og hjálpa þér þangað sem þú vilt.”