Fyrir atvinnulífið

Fyrir atvinnulífið.
Fyrirtæki geta sérpantað námskeið og fyrirlestra og eru þau sniðin að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Tilgangurinn er að koma til móts við þarfir og stöðu og miða fræðsluna við hagsmuni hans. Þannig er hægt að komast að rótum þess sem þarf að breyta og ná settu marki. Þetta getur tengst ýmsum aðstæðum, t.a.m. bæta andrúmsloftið á vinnustað eða draga úr veikindaforföllum.

Atvinnulífið í dag einkennist oftar en ekki af óöryggi og óróa sem getur haft slæm áhrif á starfsmenn. Þegar málum er þannig háttað getur verið nauðsynlegt að fá utanaðkomandi aðstoð og stuðning svo hópurinn venjist breytingum og komist klakklaust í gegnum þær.
Sumir lenda í óhjákvæmilegum veikindum og eru frá vinnu í langan tíma. Þá getur verið erfitt að mæta aftur til vinnu án aðstoðar.
Með því að laga námskeiðið/coachingen að stöðunni innan fyrirtækisins sjálfs, er auðveldara að taka tillit til þeirra sem hlut eiga að máli og aðstoða við að ná settu marki.
Að námskeiðinu loknu er boðið upp á að fylgja eftir því sem fram fór, t.d. coaching, meðhöndlun og hópvinnu. Það er gert til að hámarka árangurinn af námskeiðinu.