Fyrir heilbrigðiskerfið

Fyrir heilbrigðis- og tryggingakerfið
Starfsendurmatsnámskeið er námskeið sem er um 30 kennslustundir og er ætlað einstaklingum sem hafa af ýmsum ástæðum verið fyrir utan atvinnulífið í lengri eða skemmri tíma.  Námskeiðið byggir á atferlisfræði NLP og Coaching og lýkur með gerð persónulegs markmiðsplans sem hver þátttakandi vinnur að sjálfur.  Á þann hátt tekur viðkomandi virkan þátt í mótun eigin framtíðar.

Við skoðum og vinnum með lífsgildi, styrk og hæfni einstaklingsins svo hægt sé að finna starfssvið við hæfi. Þátttakendurnir fá aðstoð við að greina milli eigin reynslu og þeirra þátta sem hingað til hafa hamlað þeim frá vinnumarkaði. Með því er hægt að fá einstaklinginn til að verða meðvitaðri um lífsgildi sín og færni sem nýtist honum í starfi.

„Lífshjólið”, Tímalínan" og "Lykillinn" eru hugtök sem unnið er með og út frá þeim læra þátttakendur að setja sér raunhæf markmið sem mögulegt er að ná. Þeir læra að gera markmiðaáætlun sem byggir á þeirra eigin lífsgildum og gefur þeim enn stærri „eignahlut” í framtíðinni. 

Boðið er upp á eftirfylgni þar sem markmiðsplan er lagt fram fyrir ráðgjafa hvers þáttakanda. Þannig gefst einstaklingnum kostur á að kynna sína nýju lífsstefnu og finna raunhæfar leiðir til að ná settu marki.  Ef þörf þykir gefst þáttakendum kostur á einstaklingstímum með Coaching og/ eða meðhöndlun.

"Markmið Bruen er að þú upplifir að þú sért á leiðinni... að því lífi sem þú sjálf/ur óskar".

 

Einkatímar                                                                                                                                                      

Sumir einstaklingar eru enn ekki í stakk búnir til að taka þátt í hópvinnu og þurfa meiri aðhlynningu og hjálp áður en þeir hafa gagn af námskeiðinu.  Fyrir þessa einstaklinga býður Bruen upp á Coaching tíma og samtöl sem gefa viðkomandi tækifæri til að skoða "Lífshjól" sitt og vinna með það á "eigin hraða" og samtímis innan ákveðinna tímamarka.

 

Fyrir hverja?

Námskeiðin eru fyrir alla sem hafa verið í vafa um eigin getu og stefnu í framtíðinni.  Fyrir þá sem standa á tímamótum vegna veikinda, andlegra og líkamlegra, eða vegna annarra umbreytinga á vinnumarkaðnum.  Þeir sem upplifa uppgjöf og vonleysi og kvíða því að koma út í lífið á ný.

"Allar ferðir byrja á einu skrefi... og ef þú veist EKKI hvert þú vilt fara getur verið að þú hafnir þar sem þú EKKI vilt vera... með raunhæfu og góðu markmiðsplani mun fyrsta skrefið gefa þér tækifæri til að segja: ÉG ER Á LEIÐINNI..."