Coaching
Það eru margar skýringar til hvað coaching sé og hvernig „rétt” coaching ferli fer fram.
Eftir að hafa unnið með fólk í meira en tuttugu ár, bæði sem meðhöndlari og coach er mín upplifun sú að góður vinur eða góð vinkona geta oft gefið gott coaching og þá er það oft einfaldlega nefnt „vinatal”.
Coaching einn á einn
Ég álít að tvennt þurfi að vera til staðar svo coaching geti virkað: Annars vegar tillit og hins vegar kraftmikið samspil milli coach og þess sem óskar eftir breytingum og þróun.
Verkefni mitt er einfalt: Ég hlusta á það sem þú segir ekki en segir samt!
Ég vil hlusta eftir gildum þínum og sannfæringu, óskum og draumum og hvernig þú raunverulega hefur það og hvað þú raunverulega vilt.
Með því að hlusta gaumgæfilega og af athygli, get ég komið með áhrifaríkar spurningar sem munu færa þér þín eigin svör, styrk og lausnir.
Coaching er framsýnt ferli, þar sem einblínt er á að ná settu markmiði. Meðan á sjálfu ferlinu stendur er það hlutverk coachins að halda hinum coachaða á réttri braut. Aftur á móti er ábyrgðin á sjálfri breytingunni alltaf hjá þeim sem fær coaching.
Samvinna og tillit, framkvæmd og lærdómur, gera það að verkum að sá coachaði öðlast enn dýpri innsýn og skilning. Árangurinn sést í persónulegu, jákvæðu breytingaferli.
Coaching handa fyrirtækjum/félagasamtökum og íþróttafélögum
Við komum í fyrirtækið/umhvefið og könnum starfshætti og umhverfi. Samtímis er rætt við stjórnendur hvaða breytinga sé óskað. Þetta köllum við samningaferli sem felur í sér að samningur er gerður varðandi: Hvaða markmiðum vill fyrirtækið vinna að, hvernig munum við vinna að þeim, hversu langan tíma eigum við að nota og hverjir eiga að vinna saman á breytingaferlinu...
Sjálfur coaching tíminn og innihald getur verið breytilegt eftir þörfum. Það veltur á hvort um sé að ræða „einn á einn” coaching, hóp-coaching, eða blöndu af hvoru tveggja.
Coaching fyrir stjórnendur/ þjálfara
Sem stjórnandi/þjálfari stendur þú oft frammi fyrir mikilvægum ákvörðunum. Þú þarft t.d. að skila árangri, velja leiðir, stýra samvinnu og stjórna samstarfsfólki. Það kanntu og gengur vel enda sjálfsagt ástæðan fyrir að þú sért stjórnandi/þjálfari. Þú hefur ábyrgðina, nokkuð sem þér getur fundist „of mikið” á köflum. Þá getur einmitt verið gott að „kasta boltanum annað”. Til persónu sem er hlutlaus, hlustandi og heyrir það „sem ekki er sagt” en spyr jafnframt opinna og gagnlegra spurninga.
Coaching getur hjálpað þér að verða enn meðvitaðri um hvað þú vilt, hvert þú vilt komast og hvernig þú kemst þangað. Coaching getur gert þig meðvitaðri um eigin stjórnunarstíl, bæði varðandi sjálfan þig og aðra og aðstoðað við breytingar sé þess óskað. Á þennan hátt getur þú orðið enn færari stjórnandi auk þess að bæta samskipti þín á öllum sviðum.
Coaching fyrir alla
Coaching er fyrir alla sem óska eftir breytingum og/eða standa frammi fyrir óvæntum breytingum sem oft á tíðum geta umturnað lífshlaupinu.
Eitt coachandi samtal getur breytt öllu og gefið nýtt sjónarhorn á aðstæður. Það getur skapað fleiri og óvæntari möguleika og ekki síður gert markmið skýrari og raunsærri svo leiðin að þeim verði markvissari.
Saman finnum við rétta coaching ferlið fyrir þig, hvaða markmiðum þú vilt ná og hve mikinn tíma þú þarft til að komast þangað.
Það skal tekið fram að fullum trúnaði er heitið og coachingferlið er mjög persónulegt og oft tilfinningalegt.
Hvernig förum við að?
Samningaferli:
Fyrst fer fram óformlegur fundur þar sem athugað er hvort námið henti viðkomandi. Að honum loknum hafa báðir aðilar rétt á að hætta við sé þess óskað. Sé hins vegar sóst eftir samstarfi er fundinn grundvöllur fyrir árangursríkt ferli og gerður er samningur þar sem m.a. er kveðið á um:
Hvað við ætlum að vinna með? Hvernig og hvar við ætlum að vinna saman? Hverjir eiga að vera með? Hvenær við ætlum að ná settu marki?
Breytingaferli:
Við setjum upp „Lífshjólið” til að átta okkur á núverandi aðstæaðum og hvaða breytingum sé sóst eftir. Með „Samninginn og Lífshjólið” að leiðarljósi, búum við til markmiðaáætlun sem byggir á smærri skrefum í átt að lokamarkmiðinu. Á þessu stigi gerum við samkomulag um þau „verkefni” sem þarf að leysa til að komast á næsta þrepi.
Á þessu stigi getur coaching miðast við „einn á einn” eða stærri hópa.
Lokaferli:
Við búum til nýtt „Lífshjól” og skoðum hvernig núverandi aðstæður séu. Við athugum hvað hefur breyst og hvar þú ert staddur/stödd miðað við sett markmið. Þetta er gert þar sem breytingar á einu sviði lífsins geta haft ótvíræð áhrif á önnur svið. Fyrir vikið upplifa margir að þeir eru tilbúnir í enn frekari breytingar þar til að „Lífshjólið” hefur smám saman nálgast jafnvægi á ný.
Coaching hefur þau áhrif að þú verður meðvitaðri um stöðu þína í lífinu og hvernig þú í raun hefur það. Samhliða hefur coaching einföld „verkfæri” til að gera lífshlaupið markvisst og áhrifaríkt.
Þegar einu marki er náð kemur löngun til að setja stefnuna á nýtt. Því stjórnar löngunin til að hlakka til einhvers og fá hvatningu til að ná því.
Breyting getur þýtt:
„Að missa fótfestuna um stund. Að ekki gera breytingu er að missa sjálfan sig.”
Coaching eða meðhöndlun?
Stundum upplifum við tilgangsleysi og að ómögulegt sé að komast áfram í lífinu, sama hve mikið við reynum að breyta aðstæðum. Umhverfið virkar læst og án möguleika á að opnast.
Reynsla mín hefur kennt mér að til að vinna sig úr slíku hugarástandi þarf maður að leita svara í fortíðinni. Því vil ég meina að stundum getur verið nytsamlegt að nota meðhöndlun og coaching annað hvort samtímis eða í sitt hvoru lagi.
Sumir halda fram að þessum tveimur aðferðum eigi ekki að blanda saman en reynsla mín er sú að sé það gert geti áhrifin orðið enn áhrifaríkari og gleðilegri en ella.
Coaching er aðferð sem miðar að breyttri framtíð, þar sem áherslan er lögð á aðalatriðin. Meðhöndlun beinir hins vegar sjónum að fortíðinni og því að leysa það sem hugsanlega hindrar persónuna í að halda áfram með líf sitt.
Reynslan hefur kennt mér að oft er þunn lína milli þessara tveggja aðferða og oft getur verið ögrandi að átta sig á hvað þarf til að viðkomandi geti haldið áfram í lífinu. Á að styðjast eingöngu við coaching eða meðhöndlun eða sameina það besta úr báðum?
Í dag er vinsælla að styðjast við coach. Fyrir suma virðist vera æðra stöðutákn að hafa coach en segjast hafa meðhöndlara.
Persónulega skiptir mig engu hvað það er kallað heldur upplifi ég það sem styrk að geta veitt bæði coaching og meðhöndlun. Það veitir mér tækifæri að ná enn betri árangri fyrir sjálfa mig sem fagmann og ekki síður skjólstæðinga mína.
Við erum öll bara venjulegt fólk, sama hvað við vinnum við eða hvaða nám við stundum, öll erum við full af tilfinningum og lífsreynslu sem hefur markað sín spor á sálina; góð og vond.
Lífsreynslan flytur okkur annað hvort að settu marki og tryggir okkur góðan árangur eða hún hindrar okkur og stendur í vegi fyrir að við náum að uppfylla drauma okkar og væntingar.
„Þegar þú finnur hindrun, finnur þú einnig lausn!”