Nýtt tilboð !!!

Ferðir með tilgangi! „Travel in life”
Í samvinnu við traustar ferðaskrifstofur og flugfélög mun Bruen bjóða upp á ferðir þar sem nám, námskeið og coaching fyrir fyrirtæki og einstaklinga verða í fyrirrúmi.
Markmið okkar er að bjóða upp á öðruvísi ferðir með áherslu á „innri og ytri” upplifanir sem nýtast þátttakendum á lífsleiðinni.

Noregur, Spánn og Ísland...
eru lönd með miklar andstæður og bjóða upp á marga ólíka möguleika. Af þeim sökum urðu þau fyrir valinu sem fyrstu áfangastaðir Bruen „Travel in life”.
(Ný lönd og borgir koma síðar).

Í Noregi
höfum við greinileg skil milli sumars og veturs. Á sumrin er hægt að bjóða upp á fín sumarhús og hótel hvar sem er í landinu, milli fjalla og sjávar. Skógurinn er grænn og náttúran býður upp á ótal ögranir fyrir líkama og sál í sumarhitanum.
Á veturna getum við dvalið í háfjallahótelum eða fjallakofum. Snjórinn býður upp á óteljandi áskoranir sem vert er að bjóða byrginn. Svigskíði í fjallshlíðunum eða skíðaganga á daginn, þar sem hver og einn getur verið með eigin hugsanir um lífið og tilveruna og leyst verkefni sem fylgja námskeiði í coaching og sjálfsþróun. Fyrir framan viðarofninn á kvöldin má síðan fara yfir létt verkefni með hópnum og hafa það notalegt.


Í El Albir á Spáni
getum við boðið upp á dvöl á glæsihótelum með Spa- deildum sem eru staðsettar í miðbænum og nálægt ströndinni.
Einnig verður í boði ferðasetur sem er í 5 mínútna fjarlægð frá strönd og miðbæ. Þar höfum við eigin íbúðir með afmörkuðum sameiginlegum garði og sundlaug. Hér eru möguleikar til að fara í gönguferðir í nágrenninu, bæði til fjalla og strandar.

Kannski heilsusetur henti betur? Heilsusetrið er afgirt og aðeins 5 km frá miðbænum. Þar er ótrúlega fallegur garður og sundlaug. Á staðnum eru m.a. læknastofur, sjúkraþjálfun, nudd og æfingaaðstaða.
Enn einn möguleikinn sem býðst er fjögurra stjörnu heimilislegt og flott hótel sem liggur rétt utan við lista- og sögubæinn Altea. Hótelið er á ótrúlega fallegum stað og þaðan er hreint ómetanlegt útsýni yfir fjöll og sjó.
Hægt er að fara í dagsferðir til fjalla eða stórbæjanna Torrevieja og Benidorm eftir óskum.

Á Íslandi
getur þú átt von á öllu. Stór og flott hótel, fjallakofar eða lítil og meira heimilisleg hótel. Spa og nudd í Bláa lóninu eða útisundlaugum. Ógleymanleg lífsreynsla fyrir sál og líkama úti í náttúrunni. Hér getur þú átt von á að hárið á höfðinu frjósi meðan líkaminn er heitur og góður undir heilnæmu vatni lónsins eða heitu pottanna.
Kannski ferð á Vatnajökul, stærsta jökul Íslands eða ferð á Gullfoss og Geysi? Hvað með annan fót inn á Ameríkuplötunni og hinn á þeirri evrópsku? Jú, það er mögulegt. Á Íslandi!
Möguleikarnir eru margir, það er bara að sleppa ímyndunaraflinu lausu og mæta álfum, tröllum og huldufólki þar sem þau eru, geymd undir hverjum steini og þúfu.

Noregur, Spánn eða Ísland ?

Noregur
Ja takk, begge deler. Sumar er sumar og vetur er vetur, hið þekkta og útreiknanlega. Vilt þú vita að hverju þú gengur; með skó á fótum eða skíði? Nota líkama og sál og upplifa ögranir náttúrunnar? Það er upplifun sem Noregur býður upp á.

Spánn
Langar þig að upplifa sól, hita og birtu? Fara á stað þar sem þú getur setið úti með hópverkefnin, farið í gönguferðir meðfram ströndinni og notið róandi áhrifa hafsins? Eða slappa af, láta axlirnar síga? Láta þig dreyma og bara lifa lífinu, hér og nú?
Þá er ferðinni án efa heitið til Spánar.

Ísland
Langar þig að upplifa spennu og óvænta atburði? Öfgafullt veðurfar og sjaldgæfar náttúruaðstæður? Viltu upplifa öðruvísi og dularfyllri andlega menningu?
Þá er Ísland landið sem þú vilt heimsækja.

Hvaða land eða stað sem þú velur, viljum við í samvinnu við þig útbúa ferð þar sem þínar óskir og væntingar eru í fyrirrúmi.

Aðrir staðir koma einnig til greina. Þá er hugsanlegt að fleiri fyrirlesarar bætist í hópinn.

 


 

Bruen óskar eftir að leiða þig að markmiði þínu.

Ytra ferðalag, líkamlegt ferðalag til valins staðar með ábyrgum ferðaskrifstofum. Skoða og upplifa nýja staði í heiminum (ytra umhverfi).
Innra ferðalag, andlegt ferðalag, sem setur í gang jákvætt, persónulegt breytingaferli og stefnir að því lífi/markmiði sem þú óskar. Skoða og upplifa sjálfan sig, (innra landslag).

.
Þannig förum við að:

Fyrir ferðina
kortleggjum við þarfir fyrirtækisins, hópsins og/eða einstaklingsins. Þetta gerum við með coach-samtölum þar sem fengin er innsýn í starfsumhverfi fyrirtækisins og hvernig breytingaferli hentar best. Þannig er hægt að skapa heildstæð markmið og auka faglegt starf í ferðinni sjálfri. Að því loknu er skipulagt hvert skuli haldið, dagsferðir ákveðnar, námsefni valið og hvernig tímanum skuli varið. Skipurit og dagskrá verða afhent fyrir hverja ferð.

Ferðin sjálf
ræðst að óskum. Hún getur t.d. verið þrír, fjórir eða fimm dagar. Möguleiki er að fara á miðvikudegi og halda gott hópefli um kvöldið. Á fimmtudegi og föstudegi er hægt að skipuleggja menningarlegan og faglegan tilgang ferðarinnar; starfa í hópavinnu, fara á spennandi staði, snæða framandi kvöldverð eða takast á við líkamlegar eða andlegar ögranir. Á laugardeginum eða sunnudeginum er tími til að vinna úr nýjum áhrifum og upplifunum sem skapast hafa í ferðinni.
Þetta er aðeins einn möguleika af mörgum. Við finnum út hvað hentar þér/ykkur.

Þegar heim er komið
mun fyrirtækinu/hópnum gefast kostur á eftirfylgni meðan á breytingaferlinu stendur þar til ásættanlegum markmiðum er náð. Hún felst fyrst og fremst í coaching, meðhöndlunum og samtölum. Með þessu viljum við tryggja að námskeiðið og ferðin skili varanlegum árangri.