Hvað er NLP?

Hvað er NLP (Nevro Lingvistisk Programmering)?
Til að teljast „eðlileg” framkvæmir heilbrigð manneskja ákveðna hluti. Hún sýnir ákveðna færni og eðlilegt þroskaferli. Þess vegna getum við sagt að við séum fyrirfram „forrituð” áður en við fæðumst. Ég kýs að kalla þessi forrit grunnforrit.
Grunnforritin eiga að vera óbreytanleg, því þau gera það að verkum að við höldum áfram að starfa ”eðlilega”. Þau tilheyra ákveðnum stöðvum í heilbrigðum mannsheila.
Breytingar á þessum forritum geta t.d. orðið vegna slysa, áverka eða veikinda sem leggjast á heilann og geta valdið varanlegum breytingum á hegðun og líkamlegri getu einstaklingsins.

Sem manneskja býrðu yfir ýmsum tilfinningum og reynslu á lífsleiðinni. Margt af þessu hefur þú sett í geymslu á „bókasafni” þínu; það er geymt en ekki gleymt.
Reynsluna getum við kallað þín persónulegu forrit. Þetta eru forrit sem m.a. foreldrar þínir, kennarar, vinir og aðrir í kringum þig hafa haft áhrif á.
Sum þessarra forrita styðja þig og hjálpa þér að ná hvers konar árangri.
Meðan eru önnur sem leggja tálma á leið þína og hindra þig í að ná því sem þú óskar. Fyrir vikið skapast hjá þér óánægja og þú færð kannski á tilfinninguna að sumt í lífi þínu endurtaki sig aftur og aftur. Því er hægt að breyta.

Heilinn líkist tölvu
Með aðstoð NLP tækniæfinga getur þú skipt um þessi forrit á einfaldan og áhrifaríkan máta, á svipaðan hátt og þú skiptir og endurnýjar forritin í tölvunni.
Ímyndaðu þér að heili þinn sé harði diskurinn. Hann inniheldur öll mikilvægu forritin sem segja þér m.a. hvernig þú átt að ganga, tala, borða, keyra bíl, kippa hendinni að þér þegar þú snertir brennheita plötu, hvenær þú átt að fara gætilega og vera hrædd/ur til að forðast að gera eitthvað sem er misviturt og hættulegt.

Eins og þú veist þurfum við „harða diskinn”, hann tryggir að við „störfum eðlilega”. Þ.e.a.s. við hegðum okkur eins og samfélagið ætlast til. Tölvan virkar.
Án þessarra grunnforrita virkum við ekki rétt, þau eru algjörlega nauðsynleg.
Síðan bætast viðbótarforritin við og við þroskumst á ákveðinn hátt í kjölfarið. Þau forrit taka t.d. mið af fjölskyldunni, vinum og ekki síst kennurum. Þessir aðilar gefa/gáfu þér ábendingar um hegðun þína, hvort þú ert er klár eða lélegur, falleg/ur eða ljótur...

Já, það eru þessi litlu forrit sem geta gert gæfumuninn hvort þér vegnar vel í lífinu eða ekki. Sagan þín sem þú geymir í bakpokanum.

Hvort þú trúir að þú getir, eða trúir að þú getir ekki, þá hefurðu rétt fyrir þér í báðum tilfellunum..


Endurnýjun?
Eins og með tölvuna, þarf heilinn að endurhlaða sig reglulega. Hann gerir það daglega, t.d. með að endurnýja frumur. Þannig breytast sannfæringar þínar og trú með auknum þroska. Samt sem áður myndi ég ætla að þú upplifir einhver mynstur í fari þínu sem þú gjarnan vildir breyta.
Er eitthvað í lífi þínu sem endurtekur sig aftur og aftur og fær þig til að hugsa: „Ó nei, ekki einu sinni enn!”?
Ef þú kannast við þetta, þá þarftu aðeins að setja nýtt forrit inn í staðinn. Þú getur kallað það að skipta um sannfæringu eða sjónarmið og „plopps”, svo hefur þú allt aðra upplifun.

Að skipta um forrit
Þegar þú setur inn nýtt forrit í tölvuna tekur þú til í leiðinni og losar þig við önnur eldri. Með því myndast rúm fyrir það nýja.
Þú ert nú tilbúin/n að taka nýja forritið í notkun. Þú ert kannski ekki örugg/ur hvernig þú átt að nota það í upphafi og þarft tíma til að læra á það áður en þú öðlast góða færni.
Smám saman áttarðu þig á möguleikunum í nýja forritinu, það er bæði hrað- og skilvirkara en það sem þú varst áður með. Þú hefur fengið nýtt og betra verkfæri að vinna með.

En ef þetta virkar ekki svona í þínu tilviki? Þú ert ósáttur við hið nýja og vilt fá það gamla aftur, það er það sem þú þekkir og hefur notað í mörg ár.
Já, þá er bara að sækja það í ruslatunnuna, það er þarna enn þá. Ekkert er gleymt, bara geymt.

Þú hefur gert þetta mörgum sinnum áður, skipt um skoðun og trú, uppgötvað að það sem virkaði og var rétt fyrir 20 árum er öðruvísi í dag.

NLP hjálpar þér að gera breytingar sem þú óskar eftir í lífinu, á meðvitaðri, einfaldari og áhrifaríkari hátt en áður.

Hvaðan kemur NLP?
NLP var sett fram af Bandaríkjamönunum Richard Bandler og John Grinder. Upphafið má rekja til ársins 1972, þegar Richard Bandler, sem þá var sálfræðistúdent við St. Cruz-háskólann í Kaliforníu, fór til leiðbeinanda síns og sagðist hafa tillögu um að nemendur í sálfræði fengju kennslu í því sem hann vildi meina að væri hnitmiðaðri og árangursríkari aðferð.
Bandler hafði kynnt sér aðferðir Frits Perls sem er lærimeistari Gestaltmeðferðarinnar og var mjög upptekinn af árangri hans sem miðaði að hnitmiðaðri og árangursríkri meðhöndlun.
Sagan segir að svarið sem Bandler fékk var að hann gæti kennt það sjálfur gegn þeim skilyrðum að hann fengi einhvern með kennsluréttindi til að ábyrgjast kennsluna. Bandler fékk leiðbeinanda sinn, John Grinder, til að taka það að sér.
Þeir gerðu athuganir og prófuðu mismunandi vinnuaðferðir og tækni sem þeir smám saman þróuðu áfram.
Síðar kviknaði hjá þeim hugmynd að fylgjast með fólki sem skaraði fram úr á sínu sviði innan meðhöndlunar. Þeir vildu finna út hvað það var sem skilaði þeim betri árangri en öðrum.

Þeir rannsökuðu m.a. hvernig Virginia Satir (fjölskylduráðgjafi sem hefur skrifað fjölda bóka) og Milton Erikson (dáleiðslusérfræðingur) töluðu við skjólstæðinga sína. Með því að rannsaka niðurstöður þessarra frábæru meðhöndlara og taltækni þeirra, þróuðu þeir taltækni sem þeir kenndu síðan samstúdentum Bandlers í þróunarverkefninu.

Eitt af því sem Bandler og Grinder höfðu áhuga á var hvernig hugsanir okkar eru samansettar. Svarið var: Innri myndir, sjálfstal, hljóð og líkamleg tilfinning skipulagt í mismunandi mynstrum.
Þeir fundu út að þetta skipulag – þ.e.a.s. hvernig við hugsum – stjórnar því hvernig okkur líður þegar við hugsum um það.
Það skiptir máli hvort við hugsum um atburðinn sem stóra, ljósa og létta þrívíddarmynd eða litla, dökka mynd í svart/hvítu.
Þessi skipulagshugsun var ein af hornsteinum þessarar nýju sálfræði.

Af hverju Nevro Lingvistisk Programmering?
Þegar Bandler og Grinder höfðu náð markmiði sínu um að skapa áhrifaríka og hnitmiðaða sálfræðiaðferð, kom stóra spurningin: Hvað átti þessi nýja aðferð að heita?
Sagan segir að Bandler og Grinder hafi farið upp í fjallakofa og talað saman í fleiri daga eða þar til þeir loksins urðu sammála um nafnið: Nevro Lingvistisk Programmering.
Oft hváir fólk þegar það heyrir nafnið en skoðum tilvitnun í Bandler:
„Við höfum fengið heimsins fullkomnustu tölvu í fæðingargjöf – nefnilega heila okkar – en við fengum engar leiðbeiningar með!”
Það sem Bandler meinar er að við erum stöðugt að forrita okkur með heilanum (nevro) og þau orð sem við notum (lingvistisk); að líða vel eða illa, vera viljug eða löt o.s.frv.

Með NLP tækni er hægt að læra hvernig við getum notað mál okkar á uppbyggjandi hátt.
Ég segi oft á námskeiðum að NLP námið er; nám í að vera manneskja og kunnátta í að umgangast aðrar manneskjur. Í því felst að skilja sjálfa/n sig og aðra.

NLP í dag
NLP var þekkt í Danmörku (þar sem ég lærði) strax í upphafi 8. áratugarins og náði fljótlega traustri fótfestu. Árið 1990 (þegar Ole Vadum Dal byrjaði) jukust vinsældir þess snögglega og síðan þá hafa þúsundir einstaklinga og fyrirtækja nýtt sér hugmyndafræðina og tæknina sem NLP býður upp á.
Síðan 1972 hefur NLP þróast í margar áttir og margir af nemum Bandlers og Grinders hafa þróað margar frábærar æfingar sem auðvelda endurforritun.
Þar má nefna Robert Dilts sem þróaði m.a. Logisk þrep, Tad James sem þróaði Tímalínuna og Antoni Robins sem hefur skrifað margar mjög góðar bækur um NLP.

Við sem vinnum með NLP segjum oft: NLP er ekki í dag það sem það var í gær og verður ekki á morgun það sem það er í dag.

Persónuleg upplifun með NLP
Eftir að hafa unnið sem sérhæfður meðhöndlari í mörg ár, varð upplifun mín sterk þegar ég fyrst kynntist NLP-fræðunum. Ég upplifði fljótlega stórar breytingar á eigin atferli ásamt því að meðhöndlun mín varð enn hnitmiðaðri og árangur og bati skjólstæðinga minna skjótari en áður. Í kjölfarið ákvað ég að helga mig þessum fræðum og miðla þeim áfram.
Árið 2000 útskrifuðust fyrstu Practitioner nemar mínir á Íslandi og síðan hafa tugir einstaklinga, bæði í Noregi og á Íslandi, notið þess að kynnast NLP á margvíslegan hátt.
Ég upplifi NLP og coaching sem tvær markvissar aðferðir sem saman skapa enn breiðari grundvöll til að ná áhrifaríkum árangri, hvort sem er í einkalífinu, fyrirtækjum, félagasamtökum eða íþróttafélögum.

Ég hef heyrt marga segja: „Ég er ekki samur/söm eftir að ég kynntist og lærði NLP.”
Heimilisfólk mitt staðfesti þetta fyrir mér þegar þau sögðu að þau vissu aldrei hver kæmi heim eftir að hafa verið í NLP náminu í Danmörku, Kýpur og Osló.

Ég veit sjálf að sú breyting sem ég persónulega hef farið í gegnum á liðnum árum hefur gert það að verkum að ég er ekki sú sama í dag og ég var í gær og verð ekki sú sama á morgun og ég er í dag. Ég er á hreyfingu, ég breytist og þróast og veit að ég get valið að mestu leyti sjálf hvert ég stefni.
Ég miðla með gleði þeirri kunnáttu og reynslu sem ég hef gegnum kynni mín af NLP og Coaching. Ég hjálpa þér með ánægju að finna þá leið sem þú sjálf/ur óskar.
Ég hef spurningarnar og þú hefur svörin.


Ef einhver annar getur, getur þú líka
Eitt af því sem NLP gengur út frá er að við höfum öll hæfileika til að breyta okkur. Við breytumst stöðugt.
Á lífsleiðinni „forritum” við eigið atfelismynstur með því sem við segjum, neikvætt og jákvætt, við okkur sjálf. Þegar sannfæringar- eða atferlisforritið er fullbúið er það sett í geymslu í undirmeðvitundinni og þú þarft ekki að hugsa um það lengur.
Líkaminn hefur það skráð í frumunum og atferlið og hugsanamynstrið er sjálfvirkt (ómeðvitað).
„Verkfærin” í NLP eru löng röð af einstöku skipulagi og munstrum sem eru eftirlíking af atferli og hegðun fólks sem hefur skarað fram úr og náð frábærum árangri á sínu sviði.
Aðeins var tekinn upp, eða hermt eftir, þeim þætti í atferlisskipulagi þeirra sem var áhrifaríkastur. Síðan var þeim skipulega raðað saman – og niðurstaðan er verkfærakista með fullt af „uppskriftum” til að leysa hin ýmsu verkefni, t.a.m. velja og setja sér markmið. Þannig getur þú auðveldað þér að lifa því lífi sem þú óskar.

Eins og áður segir eru verkfærin í stöðugri slípun og þróun. Ég, sem vinn daglega með NLP og fólk, gegnum meðhöndlun, coaching, námskeið og nám, tek þátt í að búa til nýjar aðferðir sem og þróa hinar eldri. Það er gert vegna þess að engir einstaklingar eru eins og engir námshópar líkir. Ég læri gegnum nemendur mína og kenni áfram það sem ég læri.

Í dag eru stöðugt fleiri með ólíkan bakgrunn og markmið sem vilja læra NLP, annað hvort til að verða coach eða meðhöndlarar eða til að gefa sjálfum sér lærdóm um lífið.

NLP nýtist þér á öllum sviðum lífsins

NLP er:
• Kraftmikil umbreytingatækni sem laðar fram enn meiri styrk og leiðir þig að þínum markmiðum.
• Ein af áhrifaríkustu aðferðum innan meðhöndlunar í dag.
• Aðferð sem veitir okkur dýpri skilning og kunnáttu um sálræna þætti sem stjórna lífi okkar.
• NLP er þróað með því að kanna hvernig okkar innri tjáning býr til hugsanir, tilfinningar og atferli.
• NLP tækni er þróuð með því að skoða fólk sem skarað hefur fram úr á einu eða fleiri sviðum og gefur þér þess vegna ómetanlegt tækifæri til að læra og tileinka þér atferlismynstur sem á áhrifaríkan hátt gerir þér kleift að skipta og umbreyta óæskilegu atferli í jákvæðara, styrkjandi og æskilegt atferli.

Hvers vegna að læra NLP?
• Ef þú vilt vera góður, upplýstur og athafnasamur meðhöndlari er NLP frábær kostur. Það er einfalt og áhrifaríkt verkfæri til að skilja skipulag og munstur í vandamálum annarra og þannig má finna nýja uppskrift fyrir jákvæða breytingu.
• Til að bæta samskipti þín enn frekar.
• Til að líða vel andlega og ná sálrænu jafnvægi.

NLP er einföld, en samt sem áður flókin, röð af eiginleikum sem aðstoða þig að finna hvers þú óskar í lífinu og hvernig þú öðlast það.
„Ef þú veist ekki hvert þú ætlar, þá getur vel verið að þú lendir á einhverjum allt öðrum stað!”